haustið að koma, grafa úlpurnar og kuldaskónna fram úr
forstofuskápnum, þar sem það hefur verið svo kalt í sumar að þetta
hefur komið að góðum notum..

ekki einusinni 2vikur þar til ég
byrja í skólanum, alda kemur heim á sunnudaginn, flytjum 31ágúst,
bílinn kemur VONANDI úr viðgerð á morgun, gaypride var æði
dagur!!!ég, svínki, íris, ásta maría og soffía vöknuðum í hádeginu
og fengum okkur lunch á barnum, horfðum á skrúðgönguna útum
gluggan, dí hvað hún var flooooootttttt, fórum svo niðrá lækjartorg
þar sem við sáum dagskránna, blöðrurnar, gleðina og hamingjuna sem
var þar í loftinu, enda er þetta kölluð gleðigangan!!

fórum svo í
garðinn á hressó þar sem við fengum okkur öl, síðan var haldið á
Olvier í dinner, steik og sallat.. ég og sven fórum svo heim til
mín, ég þurfti að skipta um föt og mála mig á 10 mín því við vorum
svo EKKI í neinu stuði til að gera neitt og lágum í sófanum miklu
lengur en við máttum,,, fórum svo niðrá höfn í nördapartý, það var
nú meiri snilldin, og það voru ágætlega drukknir einstaklingar sem
vögguðu sér útúr bátnum að bátsferðinni lokinni...

þaðan var
haldið á oliver aftur, sátum, drukkum dönsuðum og sungum...
snilldarkvöld!! Sunnududagurinn fór í það að LIGGJA og BORÐA og
LIGGJA meira....

vinni, vinni, vinni, alla vikuna og helgina,
vinni, vinni, vinni alla næstu viku og frí næstu helgi þegar ég á
ammmælliii.. svo skólinn, flytja, læra og læra og læra og vinna og
vísó og læra og vinna og læra og læraaaaa.. og já, svona er líf
mitt í grófum dráttum fram að jólum, þarf ég að segja ed meir?